Myndasöfn
Könnun
Hvar er best að búa?



Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 39408
06.01.2009 09:07:42 / sigrunba

Og lífið heldur áfram..

Ég veit það er komið dáltið langt síðan ég skrifaði eitthvað herna, hef bara ekki haft neitt áhugavert að segja.

En núna hef ég þá frétt að segja að lífið heldur áfram þrátt fyrir nokkrar hindranir. Eins og ég hef öruglega sagt frá var mér sagt upp hjá n4 þegar það fór á hausinn og útlitið var ekki gott. En þetta hefur allt breyst :) ég fekk nýjar vinnur og þetta fór allt að fara uppávið hjá mér. Nýjustu fréttirnar eru þær að ég hef verið beðin um að kenna stafræna ljósmyndun og vefhönnun í brekkuskóla. Þetta eru valáfangar hjá 9 og 10 bekk. Ég tek við af öðrum kennara þannig að þau eru hálfnuð í áfanganum. Ég er bara spennt og þetta verður öruglega rosa gaman.

Það er ótrúlegt hvað ég hef þurft að hafa lítið fyrir þessu, það er eins og þetta hafi allt saman bara komið upp í hendurnar á mér. Sem ýtir undir þá staðreind að ef maður bara heldur áfram þá gengur þetta allt upp á endanum. :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 17:49:58 / sigrunba

Takk fyrir mig




Takk æðislega fyrir mig :)

Afmælispartyið tókst nú bara ágætlega. Bollan leyndi vel á sér, það var víst meiri áfengi í henni en maður hellt og sumir fengu að finna fyrir því ;)

Ég er rosa ánægð með kvöldið og gjafirnar, sérstaklega lagið sem við Jón Hilmar fengum.

Hér er það - > Fáum okkur bjór

p.s ég er nú samt enginn dóni :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 12:39:41 / sigrunba

Hahaha, eitthvað kannast maður við þetta!



Þetta er fyrir ykkur kattaeigendur :)



» 4 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 20:24:32 / sigrunba

Hey Jude


Mig langaði að deila þessu með ykkur... krúttlegt!



» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 10:20:17 / sigrunba

Æði

snjór, snjór, snjór... I´m loving it! :) Vonandi bætist bara í þetta svo fjallið geti opnað. Ég er að deyja mig langar svo að leika mér í brekkunum á brettinu núna. Get varla beðið eftir að skíðalyfturnar opni. :) 

Besti staður til að búa á er Akureyri :)

 
Seð frá stofuglugganum í morgun.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 12:40:48 / sigrunba

Skemmtilegt Símtal

Sunnudagsmorgun, ósköp venjulegur, mamma að lesa, Stefanía ein í sínum heimi hlustandi á hljóðbók, pabbi að brasa eitthvað og ég og einar labbandi um í sloppum :). allt eins og vanalega nema ég fekk skemmtilegt símtal áðan :) Rektor Háskólans á Akureyri hringdi í mig og bað mig um að kenna fjölmiðlafræðinemum tæknilegu hliðina á þessu, klippingar og myndataka. 20-30 tímar. Ég auðvitað sagðist hafa áhuga á þessu og hann mun hafa samband við mig aftur um hvenær þetta verður. Hugsið ykkur litla studentslausa Sigrún að kenna í HA :) hehe
Ég hef verið að hjálpa þeim sem ég þekki eins og Kríninu og Maríu með svona verkefni þannig að ég veit nokkurn vegin hvað ég er að fara út í. Þetta er auðvita aðeins meiri en bara aðstoða 2 hópa. En ég held að ég sé alveg full fær til að kenna þeim þetta, rúm 3 ára reynsla á sjónvarpstöðvum hlýtur að hafa eitthvað að segja :)

en yfir í annað...

Eins og margir vita lendi Dóri í bílslysi fyrir rúm viku síðan og er búinn að liggja á gjörgæslu síðan. Við Einar heimsóktum hann á föstudaginn áður en við rúlluðum norður. Hann var furðu hress miðað við aðstæður og ég er ekkert smá stolt af honum, hann er hetja! Það var æðislegt að hitta hann og ég þakka guði fyrir að hann sé á lífi.

Baráttukveðjur frá okkur á norðurlandi. :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 18:36:28 / sigrunba

Komin á klakan aftur

Þá erum við komin heim aftur eftir fínt frí.

Víð fórum á miðvikudaginn í leikhús og út að borða. Sýningin sem við fórum á var Monthy Pythons, Spamalot! Snildar sýning sem ég mæli hiklaust með. Þetta er grín söngleikur gerður eftir Monthy Python mynd.

Við komum svo til AK áðan og erum að fara í leikhús á eftir. :)

Ég datt í smá jólaskap þegar við lentum í gærkvöldi og ég sá snjóinn. fínnt að skreppa í nokkra daga í 16 stiga hita og lenda svo í snjókomu :) vonandi verður mikill og góður snjór í vetur.
Annað sem ég tók eftir þegar við komum heim eftir aðeins stutt stopp til Bretlands var að það eina sem er í fréttum eru fjármál og allt af fara til anskotans. Ég sit hér og horfi á fréttirnar með örðu auganu og þetta eru fréttir á eftir fréttum um fjármál og vöruskort og bla bla bla. Neikvæðni og vonleysi er yfirskriftin á þessum fréttatíma og að mér heirist öllum fréttum sem eru skrifaðar í dag.
Kom on hvernig væri að skella einni jákvæðri og skemmtilegri frétt inn á milli.
 
Rétt í þessu datt í hausinn á mér lag og atriði úr Spamalot :) þetta er atriði þar sem kongurinn situr þunglyndur því að hann er búinn að týna mönnunum sínum og þjónninn hanns fer að syngja... always look at the bright sight of life.... og þetta endar svo í heiljarinnar atriði þar sem allir syngja  þetta :)



» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2008 21:40:19 / sigrunba

London

Í gær fórum skoðuðum við Windsor castala aka heilgarheimili drottningarinnar. Hann er huge! og rosalega flottur. Við vorum í 3-4 tíma þarna að labba um og skoða. þegar maður kemur inn fær maður litið hlustunartæki og kort af svæðinu. Maður getur svo stiplað inn númer í tækið og þá heirist í manni segja frá hlutnum eða svæðinu sem númerið tengist. þetta er dúndur góð hugmynd og svín virkar. Ég allavega hlutstaði á allar upptökurnar og hafði gaman af, maður meðtekur miklu meira við að hlusta á svona tæki heldur en labba um með gide.

Windsor er kósý bær með krúttlegum verslunargötum, ég væri alveg til í að eyða meiri tíma þar með smá pening í vösunum :)

 Í dag gerðum við meiri en við ætluðum okkur í byrjun dags. Við byrjuðum á að vakna allt of semma og komum okkur til beaconsfield. Það hittum við konu hjá NFTS, skólanum sem okkur langar í. Hún rölti með okkur um skólasvæðið og sagði okkur helling frá náminu. Okkur líst bara rosa vel á þetta og ætlum að sækja umm fyrir næstu inntöku sem er í jan 2010. Það er tekið inn einusinni á ári í Jan og orðið fullt núna Jan 09, því þurfum við að bíða þolinmóð eftir næstu inntöku.

Þegar við kláruðum í skólanum skoðuðum við model bæinn í Beaconsfield. Hann er ótrúlega krúttlegur. Það ringdi helling þegar við vorum í beaconsfield þannig að við urðum að kaupa okkur regnhlífar. Það skemdi nú samt ekki fyrir módel bæjar ferðinni okkar. Eftir það var klukkan rett um 2 þannig að við ákáðum að taka lest til London og fara í vaxminjasafnið. Þar voru teknar margar myndir :) Við enduðum svo daginn á að borða kvöldmat á Ítölskum veitingarstað rétt við oxfordstreet og dóluðum svo heillengi með tubeinu í átt að heathrow og hótelinu.

núna erum við bara að slappa af á hótelinu dauðþreytt eftir langan dag. Og ég held að við endum þetta á bíómynd sem ég tók með...

bless í bili :x


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2008 10:20:39 / sigrunba

London

Það er komið ansi langt síðan ég leit hér inn. Hellingur er búið að gerast. N4 fór á hausinn og ég misti vinnunna, þér heldu samt áfram að reka sjónvarpstöðina bara undir annari kt. og enduréðu alla nema 2. Frekar kvikyndislegt hjá þeim. En ég læt þetta ekki stoppa mig, ég er komin í hlutastarf í brekkuskóla í vistinni. Það er rosa gaman og börnin yndisleg, svona allavega flestir. Ég fæ að föndra heilmikið og leika mér með þeim þannig að þetta er alveg eitthvað fyrri mig :). Síðan er ég komin í smá vinnu hjá ja.is að svara í síman, aldrei að vita nema ég svari næst þegar þið hringið í 118, já 118 góðan dag. :lol: þetta er alger færibanda vinna en allt í lagi þar sem mig vantar peninginn.

En yfir í annað...

Við ákváðum að skella okkur til London til að skoða skólann sem okkur langar í . NFTS, national film and television school. Hann er staðsettur rétt fyrir utan London. Við fengum mega díl á flugi og gátum borgað gistinguna með vildarpunktum þar sem við og mamma höfum verið ROSA dugleg að strauja kortið :d 5 stjörnu hótel hjá heathrow.

Æfintýrið byrjaði kl 5:30 í gærmorgun þegar vekjaraklukkan hringdi, við vorum búin að pakka mest öllu þannig okkur tókst að komast út korter yfir 6. Þá keyrum við suður og vorum komin í bæinn um 11 leitið. Þar þurfti ég að koma við á stöð 2 til að sækja smá efni. Það efni var ekki klárt þannig að við vorum þar til klukkan hálf eitt að reyna að redda efninu. Okkur tókst það á endanum og brunuðum til KEF þar sem við hámuðum í okkur kfc og brunuðum út á völl. Við vorum smá stund að átta okkur á hvernig bílastæða kerfið virkaði þar sem við þurftum að geyma bílinn í  5 daga við völlinn. Okkur tókst á endanum að komast í innritunar biðröðina aðeins hálftíma eftir að við áttum að vera mætt :lol: pure icelandic !

Flugvelin tók á loft hálf 4 og ég orðin verulega þreytt eftir allt bröltið og brasið síðan hálf 6 í morgun. Tvemur og hálfum tíma seinna lendum við svo á stansted. Þá byrjaði ævintýrið okkar með allmennings samgöngum. Við fundum desk þar sem við gátum fengið miða í rútu sem fór beint á heatrow, klukkutíma ferð, nema að hann kostaði dáltið mikið þannig við komumst að því að við gátum tekið aðra rútu niðrí bæ og tube upp á Heathrow, það var helmingi ódýrari þannig að við ákváðum að gera það. Okkur skildist að það ætti ekki að taka mikið lengri tíma en annað hvort heyrðum við vitlaust eða strákurinn sem afgreiddi okkur eitthvað að bulla því vorum við 3 tíma að koma okkur upp á heathrow. Einn og hálfur tími í rútu og fullt af skiftum í tube-inu. Við vorum komin með svo mikið ógeð á rútum og lestum að við ákváðum að taka bara taxa upp á hotel frá flugvellinum í stað rútu sem gekk á 20 mín fresti og það kostaði okkur 10 pund og tók 5 mín.

Klukkan var orðin hálf 12 á breskum tíma þegar við lokst komumst inn á hótel herbergi. en þar endaði þetta ekki. Við fengum fatlað hebergi, ekki var það bara fyrir fatlað fólk heldur ílla þrifið með ónýtu rúmi og öll borð og bekkir extra lágir. Við ákváðum að þetta gegni ekki og ég fór og fekk að nýtt herbergi handa okkur. Það var miklu betra, aðeins hreinna þó ekki alveg eins og ég myndi vilja hafa það á 5 stjörnu hóteli. Stærra sjónvarp, betra rúm, baðkari og borð og bekkir í réttri hæð. Við pöntuðum okkur roomservis þar sem það var búið að loka veitingastaðnum og við orðin verulega svöng. Svo slöppuðum við aðeins af fyrir framan sjónvarpið og vorum ekki lengi að sofna.

Allt endaði þó vel á endanum :)

nú er komin nýr dagur og nýtt ævintýri þannig að ég er farin út að skoða kastala....

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 09:18:27 / sigrunba

Lífið komið á fullt

    Þá er allt komið á stað aftur, skólarnir byjaðir og fólk komið úr sumarfríi. Tónlistarskólinn hjá mér byrjar í vikunni og svo er ég byrjuð að æfa karate aftur :lol: Það er mikið stuð á æfingum og gaman að rifa þetta upp. Ég er búin að týna búningnum mínum og beltunum í öllum þessum flutningum þannig að ég neyðist til að panta mér nýjan.  Frekar fúlt að þurfa að vera með hvítt belti á æfingum þegar maður er kominn lengra. en það er mér að kenna, ég hefði átt að passa betur upp á þetta. Svo veit þjálfarinn að ég er komin lengra þannig að ég verð bara metin á næsta prófi :) 

    Annars er lífið gott. Vinna, söngurinn og karate-ið fittar ágætlega saman, það er ekkert sem skerst þannig að ég á ekki að missa af neinu. Það eina sem hefði mátt vera örðuvísi eru mánudagar. Hann er langur!! 8| 8:30 til rúmlega 22:30, byrjar á vinnu til 17, söngur 17:30-19:30 og svo karate frá 21-22:30. Þetta hefði mátt vera á örðum degi en mánudeigi, ég er svo löt á mánudögum.

    En fyrir utan venjulega dagskrá hjá mér er lífið bara ljúft. Það gengur rosa vel hja okkur Einar, við höldum áfram að safna fyrir námi og ég er ástfangin upp fyrir haus :lol:
Ég hef verið að fara á kæjak með Bjarna bróðir mínum á pollinum á Akureyri. Það er rosa gaman, ég kann ekkert að velta mér en það gerir ekkert til, læri það seinna. Eins og flestir vita eru andarnefjur á pollinum, engin smá dýr! :o Þær komu upp geðveikt nálægt mér þegar ég var þarna úti ásamt fleyri kæjakmönnum. Uff hvað ég varð smeik en ég jafnaði mig flott og þá var það bara róandi að hafa þær þarna syndandi í kringum mann. Þær heldu smá syningu fyrir okkur komu upp og blesu og svona. Þetta var alveg hreint magnað. Við ætlum aftur út á fimtudaginn og vonandi láta þær sjá sig. ;)



» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 13:47:00 / sigrunba

Bið starfið

Þá styttist í helgina og guð hvað ég er fegin. Það er full lítið að gera í vinnunni eins og er. Fyrir hádegi náði ég að horfa á Opru og eina bíómynd og flakka aðeins á netinu. Hljómar nice en er það ekki, maður verður latur og loksins þegar það kemur eitthvað sem þarf að klippa nennir maður ekki að klippa það. Allavega er vikan búinn að vera þannig hjá mér. Eina sem ég er búin að gera í dag með viti er að laga aðeins til í tölvunni og klippa eitt innslag. Núna bíð ég bara eftir efni í annað innslag og þá þarf ég að bíða eftir handritinu og svo þegar ég er búin að klippa það þá er meiri bið eftir standupp-um í þáttinn til að geta klárað. Þetta starf tekur stundum á þolinmæðina hjá manni. Það væri fínt að geta fengið allt í hendurnar kl hálf 9 og verið búin um hádegi.




» 2 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 02:31:31 / sigrunba

Altaf tekur suðurlandið vel á móti manni.

Það er alveg sama á hvaða árstíma maður er þegar maður lendir á keflavíkurflugvelli. Þegar maður stígur út úr flugstöðinni tekur altaf þetta ískalda ferska rok á móti manni. Hlýjar og þægilegar mótökur Íslands. Það liggur við að maður vildi helst snúa við og fara beinustu leið upp í vel og aftur til útlanda. En sem betur fer er þetta ekki svona alls staðar á landinu. :d það er gott að koma heim í smá sól og hita.

Ferðin heim var löng og þreytandi. 5 tíma flug og svo annað eins heim þvert yfir landið í bíl. Og svo svona til að gera þetta enn þægilega er tíma mismunurinn ekki að standa með mér. 4 tímar í vitlausa átt. Við fórum frá Canada kl 21 á canadískum tíma og lentum um 6 eða 7 á íslenskum tíma. Við vorum búin að vera vakandi í 24 tíma þegar við loksins komum heim, og þá var sko sofið. Ég verð nú að segja að ég væri alveg til í svona 3-4 daga í frí til að jafna líkamsklukkuna. Klukkan er að ganga 3 um nótt og ég get ekki sofnað. úff hvað morgundagurinn verður erfiður.

En þetta er nóg í bili , ég sofna víst ekki á meðan ég hangi í tölvunni.. ég er farin að telja kindur...


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2008 23:42:19 / sigrunba

Blautt

Jaeja, tha er eg komin i internetsamband i nokkra tima. Vid erum komin til Stonewall sem er svona halftima fra flugvellinum i winnipeg. Vid forum til Toronto i fyrramalid og svo heim eftir 4 daga ef eg tel thad rett, ekki mikid eftir af friinu. I Toronto aetlum vid ad fara i wonderland skemmtigardinn, upp i einhvern risa turn og kanski ef vid hofum tima og ahuga taka turinstarutu og skoda niagra fossana (er ekki alveg viss hvort eg se ad skrifa thetta rett :d ). Vonandi verda thessu sidustu dagar bara skemmtilegir. Timinn er buinn ad lida allt of hratt, eg komst ekki i fallhlyfastokkid sem eg aetladi mer og hef ekki nad ad eida nogu miklum peningum i verlunarmidstodvum :d en mig grunar ad vid munum finna okkur tima til ad gera that i Toronto, tad er ad verlsa ;)

I dag forum vid a kano i einhverskonar votlendi, thad var otrulega gaman. Thetta var ekki stort svaedi sem vid silgdum um og ekkert spennandi thannig sed, nema thad ringdi og ekkert litid 8| og vid gerdum sma tilraun med ad reyna ad sigla i gegnum hau plonturnar sem voru i midjunni a tjorninni, og thad var gaman ;) vid erum enn ad thorna thott ad thad seu nokkrir timar sidan vid vorum uti a batnum :lol:

En Stefania er farin ad tuda um ad fa tolvuna thannig ad eg verd ad haetta

se ya later ey!

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.08.2008 01:15:18 / sigrunba

Canadamenn ekki eins internet vanir og Islendingar :)

Vid erum buin ad vera netlaus mest allaferdina og reynum ad setja inn strax og vid komumst i netsamband. Pabbi tok goda syrpu a bokasafninu i gimli um daginn og setti allt inn sem vid hofum ekki geta sett inn. thad var hellingur :)

Kristin: Wanda segir hae, vid hittum hana a islendingahatidinni og erum ad fara med henni a Heka island a morgun og eigum svo bokadan kvoldmat a sunnudaginn hja henni. Og Heather bidur lika ad heilsa, Krabbameinid er aftur komid upp hja henni thannig ad hun hefur verid hressari, eg segi ther fra thvi thegar eg kem heim.

Annars er bara rosa gaman, fullt af sol og allt of heitt i augnablikinu og full mikid af mosquoito eda hvernig sem thetta er skrifad :)

bless i bili

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.07.2008 17:02:32 / sigrunba

www.midlari.is/canada

fylgist með ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Klukkan
Dagsetning
28. janúar 2012
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti